Grasalæknir
Anna Rósa grasalæknir hefur nýverið opnað stofu í Heilsuborg.Hún hefur 20 ára reynslu sem grasalæknir en samhliða ráðgjöf framleiðir hún krem, smyrsl og tinktúrur sem fást í apótekum og heilsubúðum.
Algengt er að leitað sé til grasalæknis vegna langvarandi veikinda sem illa hefur gengið að ráða bót á með hefðbundnum lækningum en Anna Rósa fæst m.a. mikið við kvilla tengdum breytingaskeiðinu, svefnleysi, gigt, magabólgur, uppþembu, hægðatregðu, astma, háan blóþrýsting, ofnæmi, exem, sóríasis, bjúgsöfnun, kvíða og þunglyndi.
Hún heldur einnig út umfangsmikilli fræðslu um lækningajurtir á Facebook og mun gefa út bók um íslenskar lækningajurtir í haust. Tímapantanir: annarosa@annarosa.is og nánari upplýsingar á www.annarosa.is
