Hreyfing á meðgöngu
Samstarf Heilsuborgar og Kvennadeildar Landspítala
Meðgangan er mikilvægt tímabil þar sem sérstaklega mikilvægt er að huga að góðum lífsháttum og heilsu bæði fyrir móður og barn.
Heilsuborg og kvennadeild Landspítala starfa nú saman að því að auðvelda barnshafandi konum í yfirþyngd og/eða með sykursýki á meðgöngu að ná tökum á bættum lífsstíl og finna hentuga hreyfingu.
Við erum að kanna þátttöku með það að markmiði að hefja námskeið í haust.
Áhugasamir geta látið skrá sig á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010 og haft verður samband við viðkomandi. Bjóðum þunguðum konum uppá fría ráðgjöf og getum aðstoðað þær við að finna þjálfun við hæfi.
Ef spurningar vakna endilega sendið fyrirspurn á heilsuborg@heilsuborg.is
