Markþjálfun
Markþjálfun í Heilsuborg (Coaching)
Haddý Anna Hafsteinsdóttir, íþróttafræðingur og markþjálfi, hefur s.l. 15 ár starfað á sviði heilsuræktar. Hún segir markþjálfun vera árangursríka aðferð til að bæta frammistöðu, skerpa á framtíðarsýn og ná settum markmiðum.
Hvað er markþjálfun?
Markþjálfun er aðferð sem notuð er til að laða fram það besta í fólki og hámarka getu þess og frammistöðu hvort sem er í einkalífi eða starfi. Markþjálfun er leið til að horfast í augu við sjálfa/n sig á jákvæðan og uppbyggjandi hátt - meta aðstæður, setja sér markmið og láta drauma sína rætast.
Hvernig fer markþjálfun fram?
Markþjálfun fer fram með einstaklings- og hópviðtölum. Með viðtölum og verkefnum virkjar einstaklingurinn eigin þekkingu og hæfni til að leysa vandamál og ná hámarksárangri.
Er nóg að fara einu sinni í markþjálfun?
Einu sinni er betra en aldrei. Fyrsti tíminn fer í að kynnast aðeins ferlinu og því er ákjósanlegra að fara í c.a. 3 – 5 tíma til markþjálfa áður en árangurinn er metinn. Til að ná sem mestum árangri í hverjum tíma er mikilvægt að ná góðu sambandi við sinn markþjálfa, treysta honum og tala af hreinskilni og einlægni.
Hvernig gagnast markþjálfun þeim sem vilja léttast eða breyta um lífsstíl?
Þeir sem eiga í vandræðum með ofþyngd vita flestir að það getur verið erfitt að breyta um lífsstíl en með réttu hugarfari eru mun meiri líkur á að markmið okkar náist. Það gildir hins vegar ekkert eitt um okkur öll. Við erum mismunandi eins og við erum mörg og því þarf að vinna með styrkleika hvers og eins. Markþjálfun hjálpar fólki að finna og nýta betur styrkleika sína, skilgreina væntingar og framtíðarsýn og setja stefnuna á sigra. Með því má búast við góðum árangri
Tímapantanir og verð
Boðið er upp á 60 mínútna einstaklingsviðtöl í Heilsuborg. Hægt er að panta sér tíma í markþjálfun hjá Haddý með því að senda henni póst á haddy@heilsuborg.is eða hringja í s: 898-5998
Verð: 7.900 kr. tíminn. (5.000.kr. tíminn séu keyptir 5 tímar eða fleiri)
