Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

HAM - Ofþyngd

LineBreak
HAM - Ofþyngd

Hugræn atferlismeðferð og heilbrigður lífsstíll

 Megináhersla lögð á að vinna með hugsun, hegðun og líðan sem tengist ofþyngd

 

Hópmeðferðin er ætluð einstaklingum sem eiga við ofþyngd að stríða, upplifa vanlíðan vegna þess og hafa áhuga á að skoða og vinna í sjálfum sér. Á námskeiðinu er farið í hagnýtar aðferðir þar sem unnið er með hugsun, hegðun og líðan sem tengist ofþyngd með það að markmiði að taka upp heilbrigðari lífsstíl.

  • Meðferðin er einu sinni í viku í 7 vikur, 2 klst. í senn. Á fimmtudögum kl. 17.00-19:00
  • Gert er ráð fyrir 8-12 þátttakendum í hverjum hópi
  • Hreyfing er ekki innifalin í námskeiðinu en boðið er upp á 20% afslátt af líkamsræktarkortum í Heilsuborg meðan á HAM hópmeðferðinni stendur
  • Næsta námskeið hefst um miðjan ágúst - skráning hafin

 

Meðferðin er byggð á hugrænni atferlismeðferð. Einnig er stuðst við meðferðarnálganirnar: Þjálfun svengdarvitundar (Appetite Awareness training), Árvekni (Mindfulness) og Þjálfun Samkenndar (Compassion-Mind Training). Meðferðin byggir á fræðslufyrirlestrum sem og verklegum æfingum í tíma og heima.


Meðferðaraðilar eru Helma Rut Einarsdóttir sálfræðingur og Valgerður Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur

Námskeiðsgjald er kr. 39.500.- (þ.e. kr 2.820 á klst. Athugið möguleika á niðurgreiðslu frá stéttarfélagi eða vinnuveitenda)

 

Skráning og nánari upplýsingar í afgreiðslu Heilsuborgar, s: 560-1010. Einnig í símum 691-3949 (Valgerður) og 695-5288 (Helma) og vmm@internet.is og helmarut@gmail.com

Þetta námskeið hefur verið í gangi síðan fyrsti hópurinn fór af stað í desember 2009 og fengið mjög jákvæðar viðtökur. Sjá umsagnir þátttakenda hér að neðan.
 

Framhaldsnámskeið eru í boði fyrir þá sem hafa lokið grunnnámskeiðinu. Eru þau á þrið kl. 16:30-18:30 í 5 skipti. Námskeiðsgjald er kr. 28.000,- 

 

Umsagnir þátttakenda

LineBreak

Ummæli Úlla

Ég er viss um að þið eigið eftir að hjálpa mörgum mér líkum. Mér líður svo vel að vera að sinna sjálfri mér og gæti ég ekki verið sáttari en ég er í dag! ...

Ummæli Ingigerður

"Ég sagði við hana Erlu um daginn að ég öfundaði alltaf fólk af því að hafa þörf fyrir að fara í ræktina, en nú finn ég þessa þörf hjá mér líka," ...

Ummæli Halldór

Ég hef fylgt Önnu Borg lengi og treysti henni betur en nokkrum öðrum til að þjálfa mig enda þekkir hún mig og mína sögu ...