Sjúkraþjálfun
Starf sjúkraþjálfara er meðal annars fólgið í nákvæmri greiningu og meðferð ýmissa sjúkdómseinkenna sem tengjast truflun á hreyfigetu og stafa af sjúkdómum, slysum eða röngu álagi.
Sjúkraþjálfarar vinna að því að viðhalda og bæta heilsu og starfshæfni. Ráðgjöf, forvarnir og heilsuefling er mikilvægur þáttur í starfi sjúkraþjálfara vegna sérþekkingar þeirra á álagseinkennum og afleiðingum ýmissa sjúkdóma á stoðkerfi líkamans.
Sjúkraþjálfarar í Heilsuborg annast mat á ástandi stoðkerfis og ráðleggja viðeigandi þjálfun.
Boðið er upp á þjónustu sjúkraþjálfara í Heilsuborg, niðurgreidda af sjúkratryggingum.
Verð:
Sjúkraþjálfarar sem starfa í Heilsuborg:
Linda Gunnarsdóttir
Halldóra S Gunnlaugsdóttir
Helgi A. Erlendsson
María Jónsdóttir
