Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Streita og svefntruflanir - námskeið

LineBreak
Streita og svefntruflanir - námskeið

Streita og svefntruflanir -  Hvað er til ráða? 

  • Hvaða áhrif hefur streita á líkamlega og andlega heilsu?
  • Vilt þú læra að þekkja þína streituvalda?
  • Hvað getur þú gert til að bæta svefninn?
  • Getur þú nýtt streitu á uppbyggjandi hátt og öðlast heilbrigðara líf?

Fim 10. maí kl. 20.00 -  Magna Fríður Birnir hjúkrunarforstjóri - Streita og slökun

  • Hvað er streita?
  • Hvað gerist í líkamanum og hvaða áhrif hefur streita á andlega og líkamlega líðan og heilsu?
  • Magna leiðbeinir um þessi atriði ásamt fleiru og kennir einfaldar leiðir til slökunar

Þri 15. maí kl. 20.00 - Sigrún Ása Þórðardóttir sálfræðingur - Jafnvægi og vellíðan í daglegu lífi

  • Hvernig þekki ég mína streituvalda og hvað get ég gert til að þeir vinni með mér í staðin fyrir að gera mér lífið erfitt?
  • Sigrún Ása kynnir til sögunar aðferð sem nýtist til að meta streitu og finna leið til að efla heilsu og vellíðan

Þri 22. maí kl. 20.00 - Erla Gerður Sveinsdóttir læknir - Betri svefn

  • Hvernig get ég bætt svefninn? 
  • Hvað þarf ég að gera til að komast af stað til að bæta heilsuna?
  • Erla fjallar um svefntruflanir og leiðir til að bæta svefn
  • Auk þess mun hún draga saman í stuttu máli hvað þarf að gera til að innleiða venjur sem bæta heilsuna og fyrirbyggja heilsubrest

 

Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010
 
Verð á alla fyrirlestrana - Samtals kr.  7.500

Við mælum með að allir fyrirlestrarnir verði sóttir sman þar sem þetta er í raun ein heild.
Kjósi einhver að koma í stakan fyrirlestur er verðið á honum kr 3.000.

Sérstakt tilboð til þátttakenda í Heilsulausnum, kr. 4.900.-
Vikupassi í heilsuræktina fylgir!

LineBreak