Opnir tímar
Stefna Heilsuborgar er að leggja áherslu á lokaða hópa þar sem hægt er að fara vel í grunn æfinganna, finna út hvar mörk viðkomandi liggja og byggja upp álag smám saman. Erfiðara er fyrir þjálfara að fylgjast með og tryggja að fólk fari ekki fram úr sér þegar hópar eru opnir og þar af leiðandi er meiri hætta á meiðslum.
Markmiðið með þeim opnu tímum sem eru í boði er að kynna mismunandi form af hreyfingu og auka fjölbreytni og lífsgleði.
Tabata á þriðjudögum kl. 09.00
Skemmtilegir tímar með Elvu - lotuþjálfun og mikil brennsla
Þjálfari: Elva
Salsa Fitness á miðvikudögum kl. 18.30
Dansaðu þig í form með einföldum sporum, skemmtilegri tónlist og góðum félagsskap
Þjálfari: Eva
Laugardagsfjör kl. 11.00
Flottir tímar með mismunandi áherslum. Góður grunnur að góðum degi
Ýmsir þjálfarar
Þjálfari í tækjasal
Á mánudögum kl. 12:00-13:00
Á miðvikudögum kl. 17.30-18:30
Við hvetjum alla til að fara varlega og ráðleggjum þeim sem eru óvanir að fá leiðsögn áður en farið er í opna tíma.
