60 ára og eldri
Vilt þú bæta heilsuna og ná betra jafnvægi?
Vilt þú auka styrk og hreyfigetu?
Vilt þú auka úthald við dagleg störf?
- Aðeins fyrir 60 ára og eldri
- Einfaldar æfingar, aðhald og stuðningur
- Frábær félagsskapur
- Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal
Fyrir byrjendur: Mánudagar og miðvikudagar kl. 11:00 eða 15:00
Verð kr. 9.900 fyrir 4 vikur (2 sinnum í viku)
Einnig er hægt að skrá sig í áskrift kr. 7.900 á mánuði (þá er þriggja mánaða uppsagnarfrestur)
Fyrir lengra komna: Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl. 11:00
Verð kr. 11.900 fyrir 4 vikur (3 sinnum í viku)
Einnig er hægt að skrá sig í áskrift kr. 9.900 á mánuði (þá er þriggja mánaða uppsagnarfrestur)
Næstu námskeið hefjast 5. mars / 11. apríl / 14. maí o.s.frv.
Þjálfarar: Helga Sigmundsdóttir, lýðheilsufræðingur og Elva Björk Sveinsdóttir, íþróttafræðingur
60+ er námskeið fyrir 60 ára og eldri sem vilja markvissa hreyfingu í góðum félagsskap. Rannsóknir hafa sýnt að styrktarþjálfun er sérstaklega góð leið til að viðhalda eða bæta vöðvastyrk og beinþéttni.
Námskeiðið 60+ hentar vel þeim sem vilja auka vöðvastyrk, hægja á beinþynningu, ná betra jafnvægi, auka úthald við dagleg störf og fá markvissa þjálfun og ráðgjöf. Námskeiðið er 4 vikna lokað námskeið með léttri leikfimi, tækjaþjálfun, slökun og vellíðan. Frjáls aðgangur fylgir í heilsurætina á meðan á námskeiðinu stendur.
