Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Bakleikfimi

LineBreak
Bakleikfimi

Sambaleikfimi fyrir háls herðar og bak

Fyrirlestur: „Betri líðan í hálsi herðum og baki“

Harpa verður með fyrirlestur um Betri líðan í hálsi, herðum og baki hér í Heilsuborg í upphafi annar. Fyrirlesturinn er undirbúningur fyrir þátttakendur í bakleikfiminni og fjallar um hvað við getum sjálf gert til að bæta líðan okkar. Útskýrir af hverju við gerum æfingarnar á tiltekin hátt og svo frv.

 

Þrjú álagsstig:

Álagsstig 1 - er léttur hópur

Álagsstig 2 - er miðlungs erfiður hópur

Álagsstig 3 - er kröftugur hraður hópur þar sem að ekkert er gefið eftir.

Einnig byggjast álagsstigin á hve flóknar samsetningar og spor eru notuð í upphitun

 

Bakleikfimi í Heilsuborg

Álagsstig 2 kl: 12.05-12.55 þri og fim

Álagsstig 1 kl: 16.20-17.20 þri og fim

Álagsstig 2 kl: 17.20-18.20 þri og fim 

Álagsstig 3 kl: 18.20-19.20 fim (mán í sundlaug Hrafnistu)

Aðgangur að tækjasal er innifalinn í námskeiðsgjaldi þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga

 

UPPHITUN

Hitað er upp með samba þar sem að áhersla er lögð á að þjálfa upp stöðu og hreyfimynstur sem eru hagstæð fyrir vöðva og liði baks og útlima og þau samtvinnuð inn í daglegar athafnir. unnið er að því að efla virkni og úthald djúpa vöðvakerfisins sem styður við liðina og minnka óæskilega spennu ytri vöðvanna. Líkamsvitund, samhæfing og jafnvægi er einnig markvist þjálfað upp auk þess sem unnið er að því að auka almennt úthald og álagsþol líkamans.



ÆFINGAR Á DÝNU

Áhersla er lögð á að þjálfa mikilvæga vöðva í hálsi, baki, axlargrind, mjaðmargrind og mjöðmum auk þess sem að gerðar eru öndunaræfingar og grindarbotnsæfingar. Í þessum æfingum er hópnum skipt niður eftir því hvað líkamssvæði þarf að leggja áherslu á og hvort meiri þörf er á liðkun eða styrkingu.



LIÐKANDI ÆFINGAR OG TEYGJUR:

Til þess að ná góðri líkamsstöðu og beitingu og draga úr óæskilegu álagi á liði eru liðkandi æfingar og vöðvateygjur gerðar almennt og sérhæft eftir þörfum hvers og eins.



ÖNDUN:

Eðlileg þindaröndun er stór hluti af eðlilegri starfsemi djúpa vöðvakerfisins. Því er mikið lagt upp úr því að ná tökum á réttu öndunarmynstri auk þess sem lengd útöndun er notuð við liðkandi æfingar, styrkjandi æfingar og teygjur.

 



Í hverri viku eru tveir lokaðir leikfimistímar og frjáls aðgangur er að fullkomnum tækjasal á meðan á námskeiði stendur

 

Frekari upplýsingar má finna á bakleikfimi.is

 

LineBreak