Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Fimmtudagsfræðsla

LineBreak
Fimmtudagsfræðsla

Fyrsti fræðsludagur

Næring  - 22. mars kl. 20:00 
 


  • Hversu langt á að ganga í hollustunni? Hvernig á að lesa á umbúðir matvæla?
  • Bryndís Elfa, næringar- og hjúkrunarfræðingur
  • Við fáum margvísandi upplýsingar um það hvað telst hollt og hvað er það ekki, hvað er æskilegt að borða og hvað skal forðast. Ingibjörg mun kynna fyrir okkur á einfaldan hátt hvernig við getum fylgst með daglegri næringu okkar og hvort við séum að borða rétt.  

 

Annar fræðsludagur

Markmið - 29. mars kl. 20:00 

  • Hvernig set ég mér raunhæf markmið sem ég næ að fylgja?
  • Haddý Anna Hafsteinsdóttir íþróttafræðingur og markþjálfi.
  • Hver kannast ekki við fögur fyrirheit um að mæta í ræktina og bæta lífsstílinn. Oftar en ekki gengur þetta vel í byrjun en síðan byrja góðu áformin að fjara út. Haddý fer í hvernig best sé að setja sér raunhæf markmið og fylgja þeim eftir. Þetta er hægt!


Þriðji fræðsludagur

Lífsstílsbreytingar - 26. apríl kl. 20:00

  • Af hverju erum við að þessu heilsubrölti?  
  • Erla Gerður Sveinsdóttir læknir.
  • Hvað þarf að skoða í okkar daglega lífi til að geta tekið völdin í okkar hendur og bætt eigin líðan?  Erla  Gerður fer yfir heilsuverkefnin okkar og hvað við þurfum að hafa í huga til að halda góðri heilsu og fyrirbyggja heilsubrest.


Fjórði fræðsludagur

Hugræn atferlismeðferð - 3. maí kl. 20.00

  • Kynning og  grunnatriði. Er það eitthvað fyrir mig?
  • Helma Rut Einarsdóttir sálfræðingur og Valgerður Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur.
  • „Þetta er allt þarna uppi!„  Við vitum að hugurinn er mjög öflugur þegar kemur að því að breyta lífsstílnum. Helma og Valgerður kynna ykkur leiðir til að vinna með hugann í átt að breyttum lífsstíl.  


LineBreak