Stafganga - Nordic Walking
Stafganga í Heilsuborg
- Kennsla: Grunntækni í stafgöngu kennd. Kennt er hvernig á að nota stafina í sal og síðan er farið út og stafirnir prófaðir. Næst fer kennsla fram Laugardaginn 11. febrúar kl. 9:00-11:00. Kennt: 11. feb, 10. mars og 14. apríl. Verð kr. 2.900,-
- Æfingar í boði á eftirtöldum tímum: Frjáls mæting 1-3 sinnum í viku eftir því hvað hentar hverjum og einum (klippikort sem gildir í 3 mánuði). Mikilvægt er að ljúka kennslu í stafgöngu áður en farið er í æfingar.
- Þriðjudagar kl. 15.30-16.30 - Hittast hjá Perlunni (fyrir framan innganginn)
- Fimmtudagar kl. 09.30-10.30 - Hittast hjá Laugardalshöllinni
- Laugardagar kl. 10.00-11.00 - Staðsetning auglýst í tímunum og á Facebook
Hentar öllum á aldrinum 9-99 ára! Fullorðnir fá stafi lánaða á námskeiðinu, börn ganga stafalaus! Börn 9 ára og eldri fá frítt í fylgd með fullorðnum.
Kennsla kr. 2.900,-
Fimm tíma klippikort kr. 3.900,-
Verð samtals: Kennsla og 5 tíma klippikort 6.500,-
Stafganga hentar vel þeim sem:
- Finna til í liðamótum
- Eru viðkvæmir í hnjám og baki
- Eru þreyttir á að æfa alltaf inni
- Vilja upplifa íslenskt veðufar þ.e. síbreytilegt wink
- Fyrir þá sem vilja æfa í skemmtilegum hópi utandyra
Stafganga er mjög góð alhliða þjálfun:
- Mikil fitubrennsla
- Lungun þjálfast 30% meira en ef stafir eru ekki notaðir
- Mjög gott fyrir hjarta- og æðakerfið
- Allir vöðvar líkamans þjálfast, ekki bara neðri hlutinn
- Samhæfing líkamans
