Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Gildi Heilsuborgar

LineBreak
Gildi Heilsuborgar

Heilbrigði

Heilsuborg vill auðvelda hverjum einstaklingi að öðlast og viðhalda góðri heilsu. Áhersla er lögð á að beita markvissum forvörnum til að fyrirbyggja heilsubrest, finna lausnir á heilsuvanda sem upp kemur og leiða hvern einstakling áfram á braut sinni til betri heilsu. Leitast er við að skapa starfsumhverfi sem auðveldar starfsfólk Heilsuborgar og samstarfsaðilum að lifa heilbrigðu lífi.

 

Fagmennska

Heilsuborg veitir trausta faglega þjónustu. Með markvissu gæðaeftirlit verður tryggt að þjónustan verður ætíð í samræmi við viðurkennda innlenda sem alþjóðlega staðla og um gæði og siðferði. Persónuverndar og trúnaðar verður ávalt gætt við öflun upplýsinga, miðlun þeirra og varðveislu.

 

Samvinna

Þjónusta Heilsuborgar byggir á þverfaglegri samvinnu þeirra fagaðila sem tengjast meðferð viðkomandi einstaklings. Heilsuborg  skapar umhverfi sem stuðlar að markvissri samvinnu þar sem áhersla er lögð á jákvæðan samstarfsanda.

 

Árangur

Heilsuborg leitast við að hjálpa hverjum skjólstæðingi að ná árangri í bættri heilsu. Starfsfólk Heilsuborgar leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi þjónusta sem stuðlar að árangri öllum til handa. Heilsuborg vinnur markvisst að því að auka skilvirkni og skapa vettvang sem auðveldar hverjum fagaðila að ná árangri í sínu starfi.

 

Lífsgleði

Markmiðið með góðri heilsu er að geta notið lífsins. Góð heilsa og gleði í hjarta er hverjum manni mikilvæg. Áhersla er  einnig lögð á vellíðan og starfsgleði hvers starfsmanns Heilsuborgar.

LineBreak