Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Elín Reynisdóttir

LineBreak
Elín Reynisdóttir

Kósí og heimilislegt

Viðtal við Morgunblaðið 11. apríl 2010

Námskeið: Árangur

 

"Mér finnst kósí og heimilislegt að fara í ræktina í Heilsuborg." segir Elín Reynisdóttir sem hefur eiginlega engan tíma til að tala við blaðamann, því hún er að hlaupa út úr húsi til að taka þátt í Bollywood-sýningu. En blaðamanni tekst þó að draga nokkur orð upp úr henni.

 

"Ég er í hópi kvenna sem mæta þrisvar í viku til Önnu Borgar. Hún er í uppáhaldi. Og dagskráin er fjölbreytt, einn daginn förum við á milli stöðva, annan förum við í "body pump" og þriðja erum við í æfingasalnum. Hún vigtar okkur líka og fylgist með okkur. Það er gott til þess að vita að hægt er að leita til lækna og sérfræðinga, þó að ég þurfi ekki enn á því að halda - kannski þegar ég eldist," segir hún og hlær.

 

Miðað við spanið sem er á Elínu er mikilvægt fyrir hana að vera í sæmilegu formi, en hún vinnur við förðun hjá Ríkisútvarpinu, farðar fyrir kvikmyndir og fer bráðum utan með Evrópvisjónhópnum.  "Svo þegar frítími gefst inn á milli fer ég í Heilsuborg og næ aftur heilsu," segir hún og hlær.

LineBreak