Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Eyjólfur Kristjánsson

LineBreak
Eyjólfur Kristjánsson

Popparar þurfa að vera í formi

Morgunblaðið 11. apríl 2010

 

"Þetta er náttúrulega meira en líkamsrækt," segir Eyjólfur Kristjánsson, sem er í sjúkraþjálfun hjá Önnu Borg. "Ég hef átt í vandræðum með vinstra hnéð á mér og á það rætur að rekja til mikillrar skíðamennsku, en ég var skíðakennari árum saman í Kerlingarfjöllum. Það getur farið illa með hnéð að þjösnast á því lengi. Ég fékk þann úrskurð að ég þyrfti að fara í sjúkraþjálfun og var ávísað á Heilsuborg. Ég finn mikinn mun eftir að hafa verið þarna í smátíma".

 

Eyjólfur segis nota tímann til að taka á í tækjasalnum enda þurfi hann að vera í formi. "Ég syng og spila um allt land og það þýðir ekkert að bæta á sig aukakílóum. Þó svo að Kristján Jóhannsson og Pavarotti séu með þau, þá gengur það ekki í poppinu. Stór bringa og stór magi hjálpa þeim að syngja óperuna en gerir lítið fyrir okkur poppsöngvarana."

 

Hann segist stunda skíðin ennþá og fara með konu sinni norður á skíði út af snjóleysinu fyrir sunnan. "En ég er að verða 49 ára eftir viku og til þess að geta stundað svona sport verður maður að halda sér í formi. Það gerir mér kleift að gera það sem ég vil gera. Og það sést vel á því að ég er enn í fótbolta tvisvar í viku."

LineBreak