Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Margrét Eiríksdóttir

LineBreak
Margrét Eiríksdóttir

24. feb 2010

 

Námskeið: 60+ í janúar og febrúar

 

Það er svo gott að koma í Heilsuborg, hér er manni heilsað og það er vel tekið á móti manni. Margir á mínum aldri vilja aldrei vera með „gömlu fólki“. Ég ákvað að viðurkenna það fyrir sjálfri mér að ég væri orðin 60 ára og ákvað að fá að prófa einn tíma. Móttökurnar voru svo góðar og ég var svo velkomin inn í þetta hús. Það er jafn erfitt fyrir eldra fólk og koma á nýjan stað eins og fyrir börnin að byrja í leikskóla.  Ég vissi ekki hverju ég ætti von á og hvort ég ætti eitthvað erindi hérna inn. Strax eftir fyrsta tímann var ég ákveðin í að halda áfram. Þjálfarinn var svo hvetjandi og uppörvandi.  Hún hafði tíma fyrir okkur og hrósaði okkur mikið. Ég hef æft á öðrum stöðum, þar sem mér finnst ég vera ein í New York en mér finnst eins og ég eigi heima hér!

 

Nú þegar ég er hætt að vinna hef ég tíma til að sinna mér almennilega. Ég æfi golf á sumrin og fer í göngur en mér finnst mikilvægt að eiga stað til að vera á yfir veturinn.  Það var svo gaman að kynnast mörgu ólíku fólki á námskeiðinu. Þetta er 12 manna hópur og komum við öll úr sitthvorri áttinni, nema tvær vinkonur sem komu saman. Við komumst líka fljótt að því að enginn er góður í öllu en allir eru góðir í einhverju! Sumir eru duglegir að lyfta, aðrir í teygjum osfrv. Það var mikill stuðningur við hópinn og svo var gaman að setjast niður og spjalla við fólkið, þetta er eins og minn vinnustaður núna. Sumir ætla að halda áfram í hópnum en aðrir æfa sjálfir. Ég mun sakna þess að vera ekki í hópnum en ég finn að nú get ég þetta sjálf. Ég vil bara þakka henni Haddý fyrir að hafa kennt mér að fljúga.  Það er mér svo mikils virði. 

 

Það sem er svo gaman við tímana er að það er engin rútína, það geirst alltaf eitthvað nýtt í hverjum tíma. Við lærðum líka að maður þarf ekki að vera í ræktinni til að rækta sig! Það er hægt að gera margar æfingar heima í stofu, það er svo auðvelt að festast í hugsuninni að maður þurfi allar þessar græjur.

 

Ég er alveg ákveðin í að halda áfram. Ég er með vefjagigt og gigt sem fer í liðina en mitt besta ráð er stöðug og góð hreyfing. Einu sinni var ég heima og var mjög slæm í mjöðminni. Dóttir mín hringdi og sagðist ætla á Esjuna, hvort ég kæmi ekki með. Ég ákvað að minnast ekkert á mjöðmina og fór hölt og skökk af stað. Þegar ég var komin í 3-400m hæð velti ég fyrir mér hvað hefði orðið um verkinn í mjöðminni! Hann hvarf og næstu daga fann ég enga verki. Það er svo auðvelt að stoppa og gera ekki neitt en ég hef aldrei orðið verri af hreyfingu. Það skiptir mig öllu máli að hætta ekki að hreyfa mig.

 

 

 

Lokaorð:

Vil bara hvetja alla til að koma í fyrsta tímann – Komdu og prófaðu!!!

LineBreak