Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Sigríður Ólafsdóttir

LineBreak
Sigríður Ólafsdóttir

Viðtal við Vikuna, 17. tbl. 29. apríl 2010

Hefur kvatt neikvæðni og dómhörku

Sigríður Ólafsdóttir var búin að vera lengi í yfirvigt og hafði prófað alla mögulega megrunarkúra. Hún var slæm í hnjám, ökklum og mjöðmum og alltaf illt í bakinu. Hún fékk viðvörun í Hjartavernd vegna hás kólesteróls og hækkandi blóðsykurs, átti erfitt með öndun og var oft mjög móð enda 35-40 kílóum of þung.

 

„Ég þurfti að daga mig upp á hndriðunum þegar ég fór upp stiga. Ég var algerlega komin í þrot og var hálfpartinn farin að sætta mig við að heilsan væri farin þó að ég væri ekki nema 55 ára gömul. Af því að ég var svo léleg í skrokknum var ég búin að telja sjálfri mér trú um að ég hefði ekkert í leikfimi að gera. Ég var orðin frekar þunglynd, mjög neikvæð og dómhörð bæði í eigin garð og annara. Ég sótti um á Reykjalundi en þar var 13 mánaða bið. Þar sem mér hugnaðist ekki vel að sitja og bíða spurði ég hvort það væri mögulega eitthvað annað í boði handa mér. Þá var mér bent á Heilsuborg og ég ákvað að slá til,“ segir Sigríður.

 

Hún keypti þriggja mánaða námskeið sem inniheldur allar mælingar og greiningu ásamt þjálfun. „Fyrst fór ég til Önnu Borg sjúkraþjálfara sem greindi hver mein mín voru og hvaða æfingar væru bestar til að styrkja veiku punktana. Hjúkrunarfræðingur sá svo um þolpróf og aðrar mælingar. Það var tekið á hreyfingu, mataræði og andlega þættinum sem er ekki síst mikilvægur ef maður ætlar að ná árangri. Ég fór á námskeið í hugrænni atferlismeðferð hjá sálfræðingi sem er í Heilsuborg og hægt er að fá tíma hjá ef með þarf.  Ég mætti í þrjá daga í hreyfingu og tvo daga í fræðslu og fór í andlega uppbyggingu þessa þrjá mánuði.“

 

„Nýr heimur opnaðist fyrir mér og það hefur allt breyst. Ég er miklu jákvæðari í dag og ég hef tekið líf mitt til endurskoðunar á öllum sviðum. Ég er farin að geta hreyft mig mun meira en mig óraði fyrir að ég gæti nokkurn tíma gert, ég borða mun hollara fæði en áður, kólesterólið hefur lækkað sem og blóðsykurinn, verkir í líkamanum hafa minnkað til muna og ég hef lést um tíu kíló eða um 1/3 af því sem ég ætla mér. Ég er búin að léttast töluvert meira í andlegum kílóum talið og lífið og tilveran eru mun auðveldari og auðugri nú en áður. Ég sé teljanlegan árangur í fyrsta sinn með þessari vinnu sem er í raun engin vinna því þetta er búið að vera svo skemmtilegt.“

 

 

Stefnir á fjallgöngu á Spáni

Eftir að þriggja mánaða námskeiðinu lauk hélt Sigríður áfram að æfa í Heilsuborg sem er orðin hluti af lífinu og hún mætir fjórum sinnum í viku. „Ég hef kynnst frábæru fólki og eignast góðar vinkonur og erum við mjög duglegar að hvetja hver aðra úr hópnum til að mæta á æfingar. Ég verð alveg brjáluð ef ég missi úr tíma, en það kom aldrei fyrir á námskeiðinu, ég mætti alltaf.“

 

„Ég er búin að breyta mataræðinu þannig að nú er ég bara í hollu og góðu fæði. Borða mikið af grænmeti og ég styðst gjarnan við uppskriftir úr danska kúrnum. Ég er farin að borða morgunmat alla morgna sem ég gerði aldrei og það er mikill munur. Ég sneiði hjá unnum matvörum og hef sagt skilið við kókið sem ég hafði drukkið frá tólf ára aldri. Lykilatriðið er þó að minnka matarskammtana, borða hægt og meðvitað, þ.e. með fullri meðvitund og sitja við eldhúsborðið meðan borðað er. Ég er hætt að borða yfir sjónvarpinu og fæ mér í mesta lagi nokkrar döðlur ef mig langar í eitthvað sætt á kvöldin sem kemur æ sjaldnar fyrir.“

 

„Hreyfing er númer eitt, tvö og þrjú og fyrst ég kom mér af stað þá geta það allir. Ég er algerlega búin að breyta um lífsstíl og hef allt aðra sýn en ég hafði á lífið. Ég gekk á fjöll þegar ég var yngri og langar að gera það aftur. Ég stefni að því að fara í fjallgöngu á Spáni þegar ég verð komin í aðeins betra form,“ segir Sigríður.

LineBreak