Líkamsrækt

Heilsutengd þjónusta

Námskeið

Um Heilsuborg

 
Heilsurækt

Vigdís Guðmundsdóttir

LineBreak
Vigdís Guðmundsdóttir

19. mars 2010

 

Námskeið:

Heilbrigður lífsstíll og Morgunhanar kl. 6.20

 

Ég kom fyrst í Heilsuborg á námskeiðið Heilbrigður lífsstíll, sem ég var mjög ánægð með. Þar sá ég Önnu Sigurðardóttir og þar sem ég þekkti hana ákvað ég að slá til og koma á námskeið til hennar. Mitt líf námskeiðið (sem heitir núna Morgunhanar) er kl. 6.20 á morgnanna. Ég er nú enginn morgunhani og finnst gott að sofa út en ég lét mig hafa það og áður en ég vissi af var ég bara búin að venjast þessu. Mér fannst hressandi að vakna svona snemma á morgnanna og það besta var að kl. 7.20 á morgnanna var ég búin að æfa og þurfti ekki að hugsa meira um það þann daginn!!

 

Tímarnir voru mjög skemmtilegir. Hún Anna er bara þannig, hún er svo opin, hress og skemmtileg þannig að það verður aldrei leiðinlegt í tímum hjá henni.  Hún er svo orkumikil og smitar út frá sér orku og gleði.  Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði!!

 

Mér finnst aðstaðan hér mjög fín og böndin í teygjuherberginu finnst mér vera algjör snilld. Ég er alltaf á leiðinni að prófa lyklakerfið því mér finnst það mjög spennandi. Þá get ég æft ein en samt vitað hve þungu ég á að lyfta og í hvaða tæki ég á að fara næst.

 

Lokaorð: 

Að vera BÚIN að æfa kl. 7.20 er bara snilld

 

LineBreak