Bjargey Ingólfsdóttir er leiðbeinandi á námskeiðunum Fræðsla fyrir aðgerð og Fræðsla eftir aðgerð í
Heilsuborg þar sem hún miðlar sinni reynslu af því að byggja upp heilbrigðan lífsstíl og hvernig hún
náði betri tökum á ofþyngd með faglegri hjálp.
Bjargey er með B.A. próf í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og starfar með Evrópusamtökunum ECPO
- European Coalition for People Living with Obesity.