Dísa er þjálfari í Heilsuklúbbnum, opnum Tabata tímum og Leikfimi 60+. Hún sér líka um Einkaþjálfun og Markvissa hreyfingu.
Hún útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2017 með B.Sc í Íþrótta- og heilsufræði frá tveimur kjörsviðum, kennara- og þjálfarasviði. Einnig hefur hún lokið námi í ÍAK styrktarþjálfun hjá Keili. Hún hefur brennandi áhuga á lýðheilsu og forvörnum og stefnir á áframhaldandi nám á því sviði í framtíðinni.
Dísa hefur áhuga á almennri líkamsþjálfun og heilsurækt, einnig að vinna með íþróttafólki, einstaklingum með stoðkerfisvandamál og þeim sem þurfa andlegan stuðning og endurhæfingu. Hún hefur unnið sem þjálfari í frjálsum íþróttum, sundi og stöðvaþjálfun.
Hún hefur mikinn áhuga á útivist, hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl.