Helga lauk B.Sc. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 2007. Hún starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri samhliða því að gegna yfirþjálfarastöðu hjá listahlaupadeild Skautafélags Akureyrar. Helga lauk meistaraprófi í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands 2013 með áherslu á andlega líðan og félagslegan stuðning í kjölfar efnahagsþrenginganna á Íslandi 2008.
Hún hóf doktorsnám hjá Hjartavernd vorið 2013 með áherslu á rannsóknir á erfðum tengdum blóðfitum og svörun við blóðþrýstingslyfjum.
Helga hefur einnig starfað sem stundakennari og verkefnastjóri við Háskóla Íslands.
Helga hóf störf hjá Heilsuborg vorið 2015.
Sími: 5601010