Jóga grunnnámskeið
Nýtt námskeið fyrir byrjendur
Allir geta stundað jóga!
Taktu fyrsta skrefið og gefðu þér tækifæri til að öðlast betri líðan, andlega og líkamlega.
Á námskeiðinu er vel farið í grunnstöður í jóga og áhersla lögð á líkamsvitund, öndun og athygli. Þátttakendum er kennt að beina huganum inn á við og öðlast góða meðvitund um líkama sinn og tengjast honum. Hverjum tíma lýkur með góðri slökun. Haft er að leiðarljósi að þátttakendur upplifi vellíðan og hugarró eftir hvern tíma.
Markmið er að nemendur öðlist aukið öryggi í ástundun jóga og styrki bæði líkama og sál.
Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í jóga
Námskeið hefst 10. janúar 2017
- 5 vikur, 2x í viku 75 mínútur í senn
- Þriðjud. og fimmtud. kl. 18.45-20.00
- Þjálfari: Berglind Elva Tryggvadóttir
- Verð: 18.900 krónur
Námskeiðið er lokað með takmarkaðan fjölda þátttakenda
![]()
Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum fylgir með námskeiðinu
