Þjálfun með stuðningi sjúkraþjálfara
Frábær leið fyrir þá sem eru með verki eða önnur stoðkerfiseinkenni, hafa lent í slysum eða áföllum.
Áhersla er á æfingar sem vinna á einkennum hvers og eins. Sjúkraþjálfarinn veitir leiðsögn sem miðar því að æfingarnar séu rétt samsettar, rétt gerðar og á réttu álagi. Æfingarnar eru settar upp á þjálfunarlykil sem leiðir viðkomandi í gegnum æfingarnar. Sjúkraþjálfari uppfærir svo áætlunina vikulega og veitir aðhald á þjálfunartímabilinu. Gert er ráð fyrir að þeir einstaklingar sem eru í þessu hitti sjúkraþjálfara vikulega en mæti þess utan sjálfir 2-3 sinnum í viku og framkvæmi æfingarnar.
Innifalið í úrræðinu:
- Skoðun hjá sjúkraþjálfara og uppsetning á þjálfunarprógrammi byggt á niðurstöðum hennar.
- Aðgangur að líkamsræktinni í 2 mánuði.
- Þjálfunarlykill/æfingaplan.
- Regluleg uppfærsla á þjálfunarprógrammi og eftirlit með framkvæmd þess.
Verð:
Fyrir tíma með sjúkraþjálfara er greitt skv. verðskrá Sjúkratrygginga Íslands hverju sinni. Auk þess er greitt 17.400 krónur fyrir aðgang að líkamsræktinni í 2 mánuði og þjálfunarlykil/æfingaplan. Gert er ráð fyrir að þeir sem taka þátt í þjálfun með stuðningi sjúkraþjálfar séu að hitta sjúkraþjálfara sinn einu sinni í viku og æfa þess fyrir utan 2-3 sinnum í viku. Þetta er þó einstaklingsbundið og stundum er sjúkraþjálfari oftar með viðkomandi og stundum sjaldnar.
Heildarverð fyrir tveggja mánaða þjálfun með vikulegum stuðningi er 36.106 kr. á mánuði eða 72.212 krónur fyrir 8 vikna meðferð.
Lífeyris- eða örorkuþega sem leggja fram læknisbeiðni um sjúkraþjálfun greiða 15.552 á mánuði eða 31.103 kr. fyrir 8 vikna meðferð.
Verðskrá Sjúkratrygginga Íslands: Linkur inn á hana:
Bókanir í síma 560 1010.
Tímapöntunum eða afbókunum skal beina til móttöku Heilsuborgar í síma 560-1010
