Heilsurækt

Meðferð sjúkraþjálfara

LineBreak

Meðferð sjúkraþjálfara:

Sjúkraþjálfun vinnur að því að meðhöndla einstaklinga með einkenni frá stoðkerfi líkamans (lið- og vöðvakerfi líkamans).   Auk hefðbundinar sjúkraþjálfunar leggja sjúkraþjálfarar Heilsuborgar ríka áherslu á að þeir einstaklingar sem koma til meðferð séu virkir í æfingum og vinni þar með að því að ná langtíma árangri.  Boðið upp á hefðbundna meðferð sjúkraþjálfara skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands.   Ef komið er með beiðni um sjúkraþjálfun frá lækni taka sjúkratryggingar þátt í að greiða fyrir meðferðina.   Ef þú ert að greiða í sjúkrasjóð hjá þínu stéttarfélagi þá skaltu endilega athuga rétt þinn þar, því flestir sjúkrasjóðir niðurgreiða sjúkraþjálfun fyrir félagsmenn sína.

Verð er samkvæmt gildandi verðskrá sjúkraþjálfara hverju sinni.


Tímapöntunum eða afbókunum skal beina til móttöku Heilsuborgar í síma 560-1010 

LineBreak