Heilsurækt

Ráðgjöf sjúkraþjálfara

LineBreak

Ráðgjöf sjúkraþjálfara:

 

Ef þú ert að glíma við mein í stoðkerfi  svo sem bakverki,  álagsmein, gigt eða eftirstöðvar slysa getur sjúkraþjálfari gefið þér einstaklingsmiðaða ráðgjöf um hentuga hreyfingu eða æskilega meðferð við  þínum stoðkerfismeinum. 

Ráðgjafaviðtöl eru 30 mínútur og miða að því að finna hentugar leiðir til betri heilsu ásamt því að veita ráðgjöf varðandi líkamsstöður og líkamsbeytingu.

 

Ráðgjafaviðtöl eru góður kostur ef:

-  Þú vilt fá leiðbeiningar og ráðgjöf um líkamsstöður og líkamsbeytingu.

-  Þú hefur stoðkerfismein og vilt að sjúkraþjálfari ráðleggi þér hvaða meðferð innan Heilsuborgar hentar þér best.

-  Þú ert að æfa í líkamsrækt Heilsuborgar og vilt að sjúkraþjálfari setji upp sérhæfðar æfingar vegna einkenna frá stoðkerfi.

 

Verð er samkvæmt gildandi verðskrá sjúkraþjálfara hverju sinni.

 

 

 Ef einkennin eru viðamikil er skynsamlegara að panta beint í meðferð  hjá sjúkraþjálfara (sjá meðferð sjúkraþjálfara). 


Tímapöntunum eða afbókunum skal beina til móttöku Heilsuborgar í síma 560-1010

 

LineBreak