Uppsetning á æfingaráætlun
Uppsetning æfingaráætlunar
Viltu fá leiðbeiningar frá sjúkraþjálfara við að setja upp æfingar í tækjasal? Tækjasalur Heilsuborgar er mjög vel tækjum búinn og fyrir þá sem eru að fara af stað í æfingum en hafa undirliggjandi stoðkerfiismein, mælum við með að panta stakan tíma hjá sjúkraþjálfara og einstaklingsmiðaða æfingaáætlun og leiðbeiningar um framkvæmd hennar. Hægt er að fá æfingaáætlunina sett upp á æfingalykil ef óskað er eftir. Lykill kostar 3.500 kr.
Tíminn er 60 mínútur skv. gjaldskrá sjúkratrygginga hverju sinni og reiknast þá saman meðferðar- og skoðunargjald auk gjalds fyrir lykil
