Júnía tekur á móti þér með brosi á vör í móttöku Heilsuborgar.
Hún lauk BA-prófi í félagsfræði og viðbótardiplóma í afbrotafræði við Háskóla Íslands. Hún vinnur að meistaragráðu í félagsfræði og stefnir á námslok 2019.
Kraftlyftingar, útivera og bókmenntir eiga hug hennar en auk þess er Júnía með miðstigspróf í þverflautuleik.