Léttara líf
Léttara líf
Fjögurra mánaða námskeið um Heilsuborgarleiðina til léttara lífs sem þróuð hefur verið af Erlu Gerði Sveinsdóttur heimilislækni sem hefur aðstoðað fólk við lífstílsbreytingu og þyngdarstjórnun í áraraðir. Þar innleiðir þú hollan mat og góðar matarvenjur skref fyrir skref. Ekkert er bannað, ekkert svelti. Þú setur inn meira og meira af því góða með markvissum hætti. Fyrr en varir er mataræðið komið í gott horf án þvingana og þú nærð árangri sem endist. Í hverjum mánuði er áhersla á ákveðinn þátt svo sem að bæta reglu og skipulag, minnka sykur eða auka grænmeti á einfaldan hátt.
Námskeiðið inniheldur fræðslu, sýnikennslu í matreiðslu, smakk, góð ráð, hugmyndir og handleiðslu. Fyrirlestrar eru hálfsmánaðarlega og þess á milli færðu stuðning, hvatningu, fræðslu og uppskriftir á lokaðri facebooksíðu hópsins.
Heilsumat hjá hjúkrunarfræðingi með einstaklingsráðgjöf og mælingu á líkamssamsetningu er í upphafi námskeiðs og eftirfylgd er í lok námskeiðs með nýjum mælingum.
Leiðbeinendur eru Erla Gerður Sveinsdóttir heimilislæknir, Helga Margrét Clarke hjúkrunarfræðingur og Sólveig Siguðardóttir ástríðukokkur.
Námskeiðið er hluti af Heilsulausnum léttara líf en hægt er að taka fræðsluhlutann sérstaklega.
Nýtt námskeið hefst í haust 2016
Fyrirlestrar eru annan hvern fimmtudag kl 17:40. Verð kr. 13.500 á mánuði eða alls kr. 54.000.
