Golf - Í form fyrir golfið
Vilt þú komast í betra form og bæta golfsveifluna?
Sérhæfð þjálfun fyrir golfara!!!
Styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Æfingar sem markvisst bæta golfsveifluna.
- Tímar á mán., mið. og fös.
- Þrjú námskeið í boði þ.e.: kl. 7:45 eða í hádeginu kl. 12:10-12:55.
- Þjálfari: Anna Borg, sjúkra- og einkaþjálfari
- Verð kr. 13.900 (eða 9.900 í áskrift, 3ja mánaða binditími)
- Frjáls aðgangur að tækjasal meðan á námskeiðinu stendur
- Næstu námskeið hefjast 11. apríl og svo aftur 13. ágúst í haust
Hentar þeim, sem vilja hámarka árangur sinn í golfi, komast í betra form og bæta heilsuna.
"Ég byrjaði í hópnum hjá Önnu Borg í janúar s.l. og finn að ég er miklu hreyfanlegri í golfsveiflunni, hef lést og styrkurinn er meiri" segir Guðjón en hann sagðist hafa fundið mun á sér 3 vikum eftir að hann byrjaði á námskeiðinu. Eiginkona Guðjóns, Guðný Edda, bætti við: "Ég hef verið að synda og hreyfa mig en þegar ég sá að hann var að léttast meira en ég og ná betri árangri með golfsveifluna þá ákvað ég að mæta líka og sé bara eftir að hafa ekki mætt fyrr." "Við mætum af því að við finnum að það skilar árangri og öll hreyfing er jákvæð og gerir manni gott". Guðný Edda Guðnadóttir og Guðjón Kr. Guðjónsson
Sjá einnig Golf-einkaþjálfun
Sjá viðtal við Önnu Borg í Fréttatímanum (bls. 26)
