Grunnnámskeið um hvernig hægt er að nota mataræði til að bæta heilsuna
Gleymir þú stundum að borða í annríki dagsins – og dettur svo kannski í óhollustuna á kvöldin? Áttu erfitt með að skipuleggja þig? Finnst þér flókið að elda? Er maturinn aftarlega í forgangsröðinni? Langar þig í verkfæri til að halda þig við efnið?
Ertu búin(n) að prófa kúra eða kaupa bætiefni án þess að ná þeim árangri sem þú vilt? Viltu fá hugmyndir og læra að elda hollan mat sem bragðast líka vel?