Vilt þú bæta heilsuna og ná betra jafnvægi? Vilt þú auka styrk, hreyfigetu og úthald við dagleg störf?
Ef þú ert 60 ára eða eldri, vilt gera einfaldar æfingar og fá aðhald og stuðning þá er þetta námskeiðið fyrir þig. Rannsóknir hafa gefið til kynna að styrktarþjálfun er sérstaklega góð leið til að viðhalda og bæta vöðvastyrk og beinþéttni.
Hvert námskeið er 8 vikur. Athugið að fleiri en eitt námskeið er í boði - veldu tímann sem hentar þér! Þú ert að kaupa Álagsstig III, sem kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10:00-10:55. Sjá nánar í lýsingu.
Hægt er að koma inn í Leikfimi 60+ hvenær sem er, að því gefnu að ekki sé uppselt í valda tíma. Hafðu samband við móttöku til að kanna málið.
Lágmarks binditími í áskrift eru 2 mánuðir. Að binditíma loknum er uppsagnarfrestur 1 mánuður.