Þarfnast þú aukinnar orku eða betri svefns?
Orkulausnir henta einstaklingum sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki, svefnvanda, andlega vanlíðan eða áþekk einkenni. Einnig þeim sem glíma við vefjagigt eða þeim sem vilja komast af stað í þjálfun eftir veikindi af ýmsum toga.
Unnið er með hugsun, hegðun, hreyfingu og líðan. Námskeiðið miðar að því að innleiða jafnvægi í daglegt líf, vinna með streituþætti og lágmarka þá. Orkulausnir eru góð leið fyrir þá sem vilja vinna með sitt innra og ytra jafnvægi ásamt því að koma á reglulegri hreyfingu. Þetta námskeið er kennt kl. 14:00.
Þú getur valið í felliglugganum að skipta greiðslum upp í mánaðargreiðslur.