Vilt þú efla þol og styrk í heitu og léttu umhverfi?
Þjálfun í vatni hentar þeim sem vilja þjálfa upp styrk og úthald án þess að setja mikið álag á stoðkerfið. Hér er frábær leið fyrir fólk á öllum aldri til að koma sér í gott form og viðhalda því.
Þú ert að kaupa námskeið kl. kl. 11:00–11:40
Námskeiðið er í 8 vikur með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum undir leiðsögn íþróttafræðings. Kennt er tvisvar sinnum í viku í 40 mínútur í senn, á mánudögum og miðvikudögum. Álagið vex jafnt og þétt í gegnum allt námskeiðið.
Athugið að þjálfunin fer fram í Mörkinni, Suðurlandsbraut 66.