Sigrún útskrifaðist sem sjúkraþjálfari frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2016. Á námstímanum stundaði hún m.a. verknám í endurhæfingu á taugasviði Grensásdeildar, á öldrunarsviði SAk, Kristnesspítala og við sjúkraþjálfun barna á Æfingastöðinni.
Undanfarin ár hefur Sigrún unnið sem ráðgafi varðandi stoðhlífar, spelkur og þrýstingsfatnað.
Áhugasvið innan sjúkraþjálfunar: Meðferð verkja og æfingameðferð sem meðal annars felur í sér ráðgjöf og fræðslu varðandi rétta líkamsbeitingu. Einnig hefur Sigrún áhuga á íþróttasjúkraþjálfun og sjúkraþjálfun barna.
Sími: 560 1010