Sigrún Ása hefur frá árinu 2011 starfað sem sálfræðingur í Heilsuborg. Sigrún Ása hefur sérhæft sig í streitutengdri vanheilsu (kulnun/örmögnun) og sinnir því ráðgjöf og meðferð einstaklinga sem glíma við afleiðingar langvarandi álags á heilsu og líðan. Hún hefur einnig sérhæft sig í meðferð við langvinnum verkjum og unnið með einstaklingum sem glíma við langvinn líkamleg veikindi. Hún vinnur einnig með lágt sjálfsmat, þunglyndi og kvíða. Sigrún sinnir einstaklingsmeðferð fullorðinna í Heilsuborg ásamt því að koma að ýmsum námskeiðum og fyrirlestrum.
Menntun:
Sigrún Ása lauk BS Prófi í sálfræði frá HÍ árið 2002 og prófi í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 2005. Sigrún Ása lauk sérhæfingu í hugrænni atferlismeðferð (HAM) vorið 2019.
Frá 2006 til 2009 starfaði Sigrún Ása sem sálfræðingur við miðstöð fyrir unglinga (Ungdomscentret) í Árósum.
Frá 2010 til 2014 starfaði Sigrún sem sálfræðingur við heilsueflingarteymi HNLFÍ og var verkefnastjóri streitumeðferðar við HNLFÍ.
Sigrún er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands og Félagi sjálfstætt starfandi sálfræðinga. Hún hefur sótt fjölda námskeiða sem tengjast starfinu, en þó einkum námskeiðum á sviði núvitundar og samkenndarsálfræði.
Sími: 5601010