Hjúkrunarfræðingar Heilsuborgar veita almenna ráðgjöf um leiðir til að viðhalda heilsunni eða bæta hvað varðar næringu, hreyfingu, svefn, streitu og áhættuþætti helstu lífsstílssjúkdóma.
Íþróttafræðingar og þjálfarar Heilsuborgar kenna þér að rækta líkamann, hvort sem er í einstaklings- eða hóptímum. Þeir kenna þér að gera æfingarnar rétt. Þú nærð árangri!
Næringarfræðingar Heilsuborgar veita sérhæfða næringarráðgjöf ef um sjúkdóma er að ræða, meltingarvandamál eða vanda sem tengist næringu og lífsháttum, t.d. óþol eða ofnæmi.
Sálfræðingar Heilsuborgar bjóða bæði einstaklings- og hópmeðferð sem byggir á viðurkenndum og gagnreyndum aðferðum og stuðla þannig að betri heilsu og bættum lífsgæðum.
Sérsvið sérfræðilækna i Heilsuborg: Meðferð við offitu, gigt, húð- og kynsjúkdómar, geðlækningar, hjartalækningar barna, ofnæmis- og ónæmislækningar barna.