Þórhalla útskrifaðist með BS próf í sjúkraþjálfun frá HÍ 1997. Hún hefur sérhæft sig í taugalosun (neural manipulation ) og innri líffæralosun (visceral manipulation). Hún hefur starfað mikið við almenna líkamsrækt í gegnum árin með áherslu á fyrirbyggjandi þjálfun og fræðslu.
Þórhalla hefur einnig verið fararstjóri í heilsuferðum um Jakobsveginn á vegum ferðaskrifstofunnar Mundo þar sem hennar hlutverk var að sinna sjúkraþjálfun og hlúa að þreyttum kroppum með yoga, teygjum og góðum heilsuráðum.
Þórhöllu finnst mikilvægt að líta heildrænt á heilsuna og huga jafnt að líkama og sál.
Sími: 560 1010