Afmælisdagskrá Heilsuborgar
Þriðjudagurinn 7.október
Fyrirlesturinn Sykur og sætuefni kl. 20:00-21:00
Erla Gerður Sveinsdóttir læknir segir okkur sannleikan um sykur
Miðvikudagurinn 8. október
Frí Blóðþrýstingsmæling – komdu þegar þér hentar frá kl: 9.00-19.00 og láttu fagaðila mæla blóðþrýstinginn
Smakkaðu á hollustunni - Sólveig útbýr kræsingar og gefur uppskiftir milli kl: 9.30-11.30 og kl: 17.30-19.00
Fimmtudagurinn 9.október
Fyrirlesturinn Svefn og slökun kl. 20:00-21:30
Erla Björnsdóttir sálfræðingur og Hólmfríður Margrét Bjarnadóttirhjúkrunarfræðingur leiða okkur inn í betri svefn og dýpri slökun
Föstudagurinn 10.október
Sparifatadagur:Þennan dag ætlar starfsfólk Heilsuborgar að vera í sparifötunum – vertu með og taktu slaufuna með á æfingu. Það getur verið gaman að æfa í sparifötum.
Afmælishátíð Heilsuborgar
Laugardaginn 11. október
Opið hús frá kl. 11:00-14:00
Afmælisfjör - hóptími kl. 11:00, Hátíðin hefst á skemmtilegum hóptíma þar sem Elva, Inga María og Heimir koma öllum í gott skap.
Afmæliskaka a’la Sólveig kl: 12.30
Edda Björgvins kemur í heimsókn kl.13:00 og verður með fyrirlesturinn Gleði og Húmor – dauðans alvara
Ráðgjöf um val á skóm - kynning á skóm og göngugreiningu
100 heppnir gestir fá “Gúddýbag”frá Heilsuborg
Kynningar og tilboð á vörum og þjónustu
Kynning á boltanuddi, tískusýning,
léttar veitingar, glens og gleði
Allir velkomnir!
