Fréttir

Boltanudd - Frír kynningartími

LineBreak
Boltanudd - Frír kynningartími

TRT æfingakerfið - sjálfsmeðhöndlun
Einföld og áhrifarík leið til að losa um bólgur í vöðvum líkamans. TRT boltarnir eru notaðir til að þrýsta á svokallaða trigger punkta, sem myndast víðsvegar í líkamanum. Þrátt fyrir að vera hættulausir eru þeir langt frá því að vera sársaukalausir. Punktarnir mynda svokallaða leiðniverki og gott dæmi um slíka punkta er spennuhöfuðverkur þegar punktur á ákveðnu svæði leiðir út frá sér.


TRT boltinn er notaður til að losa um bólgu, teygjur til að fá vöðvann í fulla lengd sína og með djúpöndun og slökun samhliða æfingunum náum við þá betri heildrænni losun.

Þjálfari er Rakel Guðbjörnsdóttir heilsunuddari

Frekari upplýsingar fást hjá Rakel í síma 696-2663

LineBreak