Fáðu mat fagfólks Heilsuborgar svo þú getir valið rétta hreyfingu af öryggi.
Hreyfimat er góð byrjun þegar fólk er forvitið um stöðuna eða er að stíga fyrstu skref í átt að betra lífi og líðan en veit ekki alveg hvernig er best að byrja.
SKRÁNING
12.900kr
INNIFALIÐ
- Einstaklingsviðtal (50 mín) hjá íþróttafræðingi
- Afkastamæling:
Styrktar-, þol-, jafnvægis- og liðleikapróf - Mæling á samsetningu líkamans og grunnefnaskiptum
- Persónuleg ráðgjöf um ákjósanlega hreyfingu
Íþróttafræðingar Heilsuborgar veita þér vandaða ráðgjöf um hvar best sé að byrja miðað við þína sögu og líkamlega getu. Gerðar eru mælingar á styrk, þoli, jafnvægi og liðleika. Þannig færðu upplýsingar um hvar þú ert stödd/staddur. Í kjölfar matsins færð þú ráðgjöf um hvers konar hreyfing er heppilegust til að taka næstu skref.
Í Hreyfimati býðst einnig mæling á samsetningu líkamans og grunnefnaskiptum. Mælingin er gerð í líkamsgreiningartæki og veitir greinargóðar upplýsingar um líkamlegt ástand, sem gott er að leggja til grundvallar næstu skrefum í átt að betra lífi.
Til að panta tíma í Hreyfimat þarf að kaupa þjónustuna hér á vefnum. Hreyfimatið tekur 50 mínútur.
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on print
Print