Vilt þú læra að elda næringarríkan og bragðgóðan mat sem stuðlar að góðri heilsu? Komdu og æfðu þig hjá okkur!
Námskeið Heilsumömmunnar henta þeim sem vilja bæta mataræðið í daglegu lífi og vilja fá nýjar hugmyndir að hollum mat. Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í bættum lífsstíl og líka þeim sem lengra eru komnir.
SKRÁNING
10.900kr – 21.800kr
STUNDASKRÁ NÁMSKEIÐS
| Miðvikudag 11. september | kl. 17:30-20:30 |
| Miðvikudag 23. október | kl. 17:30-20:30 |
Vilt þú borða þig til betri heilsu?
Heilsumamman hefur um árabil staðið fyrir vinsælum matreiðslunámskeiðum þar sem hollustan er í fyrirrúmi.
Kvöldmatur, borðum meira grænmeti er námskeið þar sem grænmetisréttir eru nýttir sem undirstaða fjölbreytts kvöldverðar. Heilsuveisla alla daga með heilsumömmunni og Heilsuborg.
Fljótlegur kvöldmatur. Borðum meira grænmeti
- Karrý-kókos grænmetissúpa
- Austurlenskar kínóabollur með masala sósu
- Kryddmauk sem einfaldar eldamennskuna
- Svartbaunaborgarar með hnetusósu og marineruðum rauðlauk
- Kínóa og litríkt meðlæti
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on print
Print