Vilt þú bæta heilsuna og ná betra jafnvægi? Vilt þú auka styrk, hreyfigetu og úthald við dagleg störf?
Ef þú ert 60 ára eða eldri, vilt gera einfaldar æfingar og fá aðhald og stuðning þá er þetta námskeiðið fyrir þig.
SKRÁNING
12.300kr – 24.600kr
INNIFALIÐ
- Þjálfun tvisvar í viku
- Heitt kaffi á könnunni
- Aðgangur að opnum tímum og þjónustu í tækjasal
- Aðgangur að vel búnum tækjasal
- Aðgangur að tímum í mælingu á líkamsgreiningartæki sem sýnir samsetningu líkamans
- Heitur pottur og sauna
- Opinn tími á föstudögum kl. 11:00 fyrir Heilsuborgara, 60 ára og eldri
- OPNIR TÍMAR OG AÐSTOÐ Í TÆKJASAL
STUNDASKRÁ NÁMSKEIÐS
| Álag I | |
| Sara | |
| Þriðjudagar og fimmtudagar | kl. 13:00 |
| Álag II | |
| Guðni | |
| Mánudagar og miðvikudgar | kl. 10:00 |
| Elva Björk | |
| Mánudagar og miðvikudgar | kl. 11:00 |
| Guðrún Erla | |
| Þriðjudaga og fimmtudaga | kl. 16:30 |
| Álag III | |
| Elva Björk | |
| Mánudagar og miðvikudgar | kl. 10:00 |
| Dísa | |
| Mánudagar og miðvikudgar | kl. 11:00 |
| Dísa | |
| Þriðjudaga og fimmtudaga | kl. 10:00 |
| Guðlaug/Sara | |
| Þriðjudaga og fimmtudaga | kl. 14:00 |
| Valdimar/Dagbjört | |
| Þriðjudaga og fimmtudaga | kl. 16:30 |
Rannsóknir hafa gefið til kynna að styrktarþjálfun er sérstaklega góð leið til að viðhalda og bæta vöðvastyrk og beinþéttni.
Leikfimi 60+ er kennd í mismunandi álagsstigum I, II og III.
Álagsstig III – mikið
Álagsstig II – meðal
Álagsstig I – minna
Allir ættu að geta fengið æfingar og fundið leiðir við sitt hæfi á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt.
Álagsstig III.
Fyrir fólk sem vill og hefur getu fyrir háa ákefð við æfingar. Getur notast við palla og þyngri lóð og getur með auðveldum máta gert æfingar á dýnu.
Álagsstig II.
Fyrir fólk sem vill fá góða hreyfingu og ná upp ákefð án þess að fara í hopp og skopp. Takmörkuð pallanotkun, notast er við þyngri lóð og hugsað fyrir fólk sem þarf sérstaklega að passa uppá hné, mjaðmir og axlir.
Álagsstig I.
Fyrir fólk sem vill fá góða hreyfingu án mikils hraða en ná samt upp ákefð á annan hátt. Hentugt fyrir þá sem eru komnir með græna ljósið frá sjúkraþjálfara eftir aðgerðir eða meðferð. Fyrir þá sem þurfa sérstaklega að efla jafnvægi, liðleika og stöðugleika. Notast er við stuðning af stól í allskonar útfærslum í mörgum æfingum og ekki er notast við æfingar á dýnu.
Mikilvægt er að stunda fjölbreytta hreyfingu til að auðvelda athafnir daglegs lífs og bæta lífsgæði á eldri árum.
Þetta námskeið er ótímabundið og hægt að byrja hvenær sem er*.
Í boði eru tveir valkostir. Annars vegar tveir mánuðir staðgreiddir og hins vegar mánaðarleg áskrift í boðgreiðslu. Í síðara tilfellinu er upphafsbinditími tveir mánuðir og uppsagnartími einn mánuður. Í reglulegri áskrift er í boði að leggja kortið inn í mánuð samfellt á hverju ári.
*Með fyrirvara um breytingar og lágmarksþátttöku.
Share on facebook
Facebook
Share on twitter
Twitter
Share on print
Print