---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

HAM - Hugsun og líðan í átt að líkamssátt

LineBreak

Hópmeðferð sem er ætluð einstaklingum sem eiga við ofþyngd að stríða og/eða vilja öðlast heilbrigðara samband við mat og hafa áhuga á að skoða og vinna í sjálfum sér. Á námskeiðinu er farið í hagnýtar aðferðir þar sem unnið er með hugsun, hegðun og líðan með það að markmiði að taka upp heilbrigðari lífsstíl, verða sáttari við sig og sínar matarvenjur.

  • Meðferðin er einu sinni í viku í 7 vikur, 2 klst. í senn. Á mánudögum kl. 17.00-19:00. Hefst mánudaginn 14. apríl. 
  • Gert er ráð fyrir 8-10 þátttakendum í hverjum hópi
  • Hreyfing er ekki innifalin í námskeiðinu en boðið er upp á 20% afslátt af líkamsræktarkortum í Heilsuborg meðan á HAM hópmeðferðinni stendur
  • Endilega skráðu þig í móttöku Heilsuborgar eða í síma 560 1010.

 

Meðferðin er byggð á hugrænni atferlismeðferð. Einnig er stuðst við meðferðarnálganirnar: Þjálfun svengdarvitundar (Appetite Awareness training), Núvitund (Mindfulness) og Þjálfun Samkenndar (Compassion-Mind Training). Meðferðin byggir á fræðslufyrirlestrum sem og verklegum æfingum í tíma og heima.


Meðferðaraðilar eru Helma Rut Einarsdóttir sálfræðingur og Valgerður Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur. Þær hafa lokið tveggja ára sérnámi í hugrænni atferlismeðferð.


Námskeiðsgjald er kr. 44.000.- (þ.e. kr 3.150 á klst. Athugið möguleika á niðurgreiðslu frá stéttarfélagi eða vinnuveitenda)

Veittur er 10% afsláttur fyrir þá sem fara á HAM námskeið á sama tíma og þeir eru í Heilsulausnum.

 

Skráning og nánari upplýsingar í afgreiðslu Heilsuborgar í síma 560 1010. Einnig í símum 691-3949 (Valgerður) og 695-5288 (Helma Rut). Netföng og  

Þetta námskeið hefur verið í gangi síðan fyrsti hópurinn fór af stað í desember 2009 og fengið mjög jákvæðar viðtökur. Sjá umsagnir þátttakenda hér að neðan.

Einstkalingviðtöl/eftirfylgd í formi einstaklingsviðtala: Valgerður í síma 691-3949 og Helma Rut í síma 695-5288

 

Umsagnir þátttakenda

LineBreak

Ummæli Úlla

Ég er viss um að þið eigið eftir að hjálpa mörgum mér líkum. Mér líður svo vel að vera að sinna sjálfri mér og gæti ég ekki verið sáttari en ég er í dag! ...

Ummæli Ingigerður

"Ég sagði við hana Erlu um daginn að ég öfundaði alltaf fólk af því að hafa þörf fyrir að fara í ræktina, en nú finn ég þessa þörf hjá mér líka," ...

Ummæli Halldór

Ég hef fylgt Önnu Borg lengi og treysti henni betur en nokkrum öðrum til að þjálfa mig enda þekkir hún mig og mína sögu ...