Úlfhildur Guðmundsdóttir
25. maí 2010
Námskeið: Heilsulausnir 3
Kunni ekki lengur á mig!
Úfhildur frétti af Heilsuborg í vinnunni, en hún starfar á heilsugæslustöð. Í upphafi velti hún fyrir sér að sækja námskeið sem kallast Heilsulausnir 1 en þar sem hún er með skjaldkirtilssjúkdóm og var á lyfjum vegna blóðþrýstings ákvað hún að fara á námskeiðið Heilsulausnir 3. Aðspurð um helstu ástæðu þess að hún hafi ákveðið að fara á námskeiðið segir Úlla: „Í tengslum við skjaldkirtilinn byrjaði ég að fitna og þó svo að ég hafi ekki átt við offitu að etja þá kunni ég samt ekki lengur á mig og ég fitnaði jafnt og þétt. Ég hélt að ég myndi ráða við þetta og losa mig við aukakílóin en svo var nú ekki. Ég gef ýmsum góð ráð sem ljósmóðir, sem geta virkað ágætlega á aðra en þau virkuðu ekki lengur á mig sjálfa!“
Hef náð tökum á minni þyngd
„Á tímabili var ákveðið álag í mínu lífi og í tengslum við það gleymdi ég alveg að sinna sjálfri mér. Maður þarf að passa að fylla á sinn eigin tank til þess að hafa eitthvað að gefa öðrum. Ég ákvað að borga fyrir námskeiðið í Heilsuborg og sjá hvað myndi gerast og nú ég hef náð tökum á minni þyngd og get sagt hreinskilið að ég hélt að ég gæti það ekki. Á þessum tæpu þremur mánuðum hef ég lést um 8 kg og líður svo miklu betur. Ég hef alltaf verið dugleg að fara í göngutúra og borða hollan mat og vissi því ekki alveg hvað ég ætti að gera. Ég komst hins vegar að því að ég borðaði of lítið og of sjaldan og þurfti að bæta við annarri hreyfingu en göngunni til að bæta við mig vöðvum.“
Markmiðið að finna sjálfa mig aftur náðist!
Í upphafi námskeiðsins var öllum gert að setja sér markmið. Úlla viðurkenndi að henni fannst erfitt að setja sér markmið varðandi þyngdina. „Ég vildi ekki setja markmið sem ég hafði ekki trú á að ég gæti náð. Ég setti mér því frekar markið um að finna sjálfa mig aftur og það tókst og aukakílóin fóru samhliða.“ Aðspurð segir Úlla að það sé gott að vinna að heilsunni í hópi: „Vandamálin eru misjöfn en við erum öll að reyna við það sama.“
Þegar rætt er um mataræðið þá segist Úlla hafa prófað danska kúrinn: „ Hann er að mörgu leiti mjög fínn en hann hentaði mér ekki því ég gat ekki borðað allan matarskammtinn sem mér var uppálagt. Það er ekki mikil brennsla í mínum líkama og var erfitt að borða svona mikið. Núna hef ég hins vegar fundið leið sem hentar mér. Það mikilvægasta er að borða meira en ég gerði og oftar. Millibitarnir eru mér mikilvægir því ef ég passa að borða reglulega þá verð ég aldrei of södd né of svöng. Til að byrja með fékk ég mér alltaf ávexti á kvöldin en nú finn ég að ég er ekkert svöng eftir kvöldmat og þarf engan kvöldbita.“
Að lokum segir Úlla: „Ég er viss um að þið eigið eftir að hjálpa mörgum mér líkum. Mér líður svo vel að vera að sinna sjálfri mér og gæti ég ekki verið sáttari en ég er í dag!“
