---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Margrét Magnúsdóttir

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Margrét Magnúsdóttir
15. ágúst 2013


Endurvinnslan mín
„Ég kom fyrst í Heilsuborg fyrir þremur árum.  Ég hafði séð auglýstan fyrirlestur hjá Sirrý, um hvernig mætti  „Laða til sín það góða“. Þetta var lærdómsrík og jákvæð samkoma  og allir fengu prufutíma í  tækjasal. Ég hafði litla reynslu af heilsurækt innandyra en látið duga þá hreyfingu sem vinnan mín  með börn og unglinga veitti í áratugi. Vinnan var mér afar kær. Sund, göngur og jóga voru áhugamál.“

 

„Áföll gera ekki boð á undan sér hjá mér frekar en öðrum. Að verða óvinnufær og detta út af vinnumarkaði má líkja við að maður lendi óvænt í skriðu og nái ekki fótfestu. Vinnan og allt sem henni fylgdi veldur þá söknuði og hættulega auðvelt er að einangrast. Fyrir nokkrum árum voru verkir og vanlíðan vegna þeirra viðvarandi ástand hjá mér.  Orkan var í lágmarki. Fyrsta árið hér kostaði  líka blóð, svita og tár og mig svimaði á göngubrettinu. Bara að ganga upp og niður stiga var þolraun. Hér í Heilsuborg hef ég verið í „endurvinnslu“ eins og ég kalla það og er langt komin með þriðja árskortið þó ég komi úr Ölfusinu.“   

 

Gott samfélag
„Starfsfólk í Heilsuborg á hrós skilið. Móttökur eru alveg yndislegar á hverjum degi.  Allir boðnir velkomnir og ekkert stress. Þetta manneskjulega viðmót skiptir mig svo miklu máli því hér erum við ekki bara númer á blaði eða „gangandi evrur“ heldur manneskjur. Hérna er fólk sem umvefur mann hlýju og vináttu, leiðbeinir,hvetur og hrósar. Meðferðirnar eru fjölbreyttar. Hver og einn tekst á við sín verkefni á eigin forsendum.  Mér finnst þetta bara stórkostlegur staður. Í þessu samfélagi er gott að vera og hingað koma  stórir og smáir, ungir og gamlir.  Árangrinum má svo líkja við orðatiltækið þú uppskerð eins og þú sáir.   Mér finnst mikilvægt að  fólk hugsi frekar um að ná upp orku og bæta þrekið  í stað þess að horfa bara í kílóin. Aukinni orku fylgja svo miklu betri lífsgæði.  Maður þarf að passa inní sjálfan sig og muna eftir sálartetrinu.“


Að laða til sín það góða

„Ég hef komist að því að það er hægt að laða til sín það góða þó að maður hafi lent í áföllum og erfiðleikum og það er hægt að halda áfram og vinna úr sínum vandamálum á hvaða aldri sem er. Ég er 65 ára. Það má því með sanni segja að það góða hefur laðast að mér.“
 

LineBreak