---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Íris Blöndal

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Íris Blöndal

Heilsulausnir ágúst 2012
14. ágúst 2013


Núna eða aldrei
"Ég hafði aldrei heyrt um Heilsuborg fyrr en mágkona mín fór á námskeið hjá ykkur. Þegar hún lýsti Heilsulausna-námskeiðinu þá fannst mér hljóma skynsamlega að gefa sér góðan tíma í verkefnið þó mér hafi nú reyndar þótt eitt ár langur tími í upphafi.  Ég hef reglulega keypt mér kort í hinar ýmsu líkamsræktarstöðvar, verið dugleg fyrsta mánuðinn en svo styrktaraðili. Mér fannst líka heillandi hvað það eru margir fagaðilar sem koma að námskeiðinu en var nú samt ekki kjarkmeiri en svo að ég bað mágkonu mína að skrá mig. Síðan fékk ég símtal frá Erlu Gerði lækni, sem var mjög heillandi og hvetjandi. Ég ákvað að núna myndi ég taka mig á eða bara sleppa því alveg! Ég var komin með ýmis stoðkerfisvandamál, króníska verki í baki, hnjám og mjöðmum og svo var svefninn í ólagi. Ég var bara eins og heilsulaust gamalmenni!"


Engar kúvendingar
"Það hefur ekki orðið nein kúvending í mínu lífi. Ég lagði mikla áherslu á reglu og skipulag sem var inntakið í námskeiðinu fyrstu mánuðina. Ég tók bara til. Matartímarnir fóru í skipulag sem var mikilvægt því ég vinn vaktavinnu, finna reglulegan takt. Það eina sem við hjónin breyttum var að við hættum, fyrir það mesta, að kaupa gos og sælgæti en það er ekki þar með sagt að maður þiggi það ekki ef manni er boðið uppá eitthvað! Einstaka sinnum kaupum við okkur litla kók í gleri og finnst það feikinóg og njótum þess þá líka betur en áður. Ég nota enn 26% feitan ost og smjörva á brauðið – engin boð eða bönn, þetta er bara spurning um val. Við hættum engu heldur löguðum til. Núna hreyfi ég mig reglulega og allir þessir verkir eru horfnir. Ég hef misst 29 kíló og hef farið niður um nokkrar fatastærðir sem er afar skemmtilegt."


Skipulag máltíða mikilvægt

"Ég byrjaði á því að setja máltíðirnar í rútínu, svo fór ég að skoða hvað ég var að borða og að lokum lærði ég að nota stigakerfi Reykjalundar sem er notað á námskeiðinu og mér finnst það mjög einfalt. Ég kann á þetta núna, veit u.þ.b. hvaða matur gefur hvaða stig og ef mig langar í eitthvað “óhollt”  get ég sett það inn í þann ramma sem stigakerfið bíður uppá og það hentar mér vel. Gott að þurfa ekki sífellt að mæla og skrá. Mér fannst gagnlegar allar mælingarnar sem ég fór í til þess að vita hvað ég mætti og ætti að borða mikið yfir daginn og dreifa því rétt"


Aukin lífsgæði: Get skokkað og gengið á fjöll
"Það er mjög þægilegt að tilheyra hópi og þó að við séum ólíkir einstaklingar á námskeiðinu þá er hver og einn að vinna að sínum málum. Leiðirnar geta verið ólíkar sem við finnum, en við finnum þær sjálf. Þjálfararnir sem ég hef haft eru mjög hvetjandi og styðjandi og án þeirra hefði ég aldrei komist í gegnum þetta. Nú er árið að verða búið og ég er búin að skrá mig í Heilsuborgarklúbbinn til að tryggja að ég haldi áfram á þessari braut. Fyrir ári síðan þá hefði ég ekki trúað að við hjónin ættum eftir að fara saman út að skokka og meira að segja hafa bara gaman af því! Fyrir tveimur árum fór ég í göngu á Mosfell og eftir 50 metra var ég að drepast. Í sumar fór ég m.a. á Reykjafellið og kom sjálfri mér á óvart þegar ég var komin upp - gat þetta bara alveg! Ég er ánægðari manneskja og líðan mín er miklu betri á allan hátt."


Enginn kúr, ekkert átak og ekkert drama
"Mér finnst eiginlega merkilegast hvað þetta hefur verið átakslaust fyrirbæri – í raun og veru ótrúlega einfalt og þá spyr maður sig af hverju maður gerði þetta ekki fyrr!"
           

LineBreak