---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Helga Einarsdóttir

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Heilsulausnir 

 


Allir að vinna að sama markmiðinu
 „Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn tíma og var búin að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég ákvað að skella mér á grunnnámskeið í Heilsulausnum hjá Heilsuborg og fara svo strax á framhaldsnámskeið. Vinkona mín er hér líka og við „peppum“ hvor aðra upp og pælum saman í matarræðinu og fleiru, annars kynnist maður fínu fólki hér á námskeiðinu.  Við erum öll að vinna að sama markmiðinu sem er að bæta heilsuna og um leið að losa okkur við þessi æðislegu kíló.“


Helga segist strax hafa fundið að það væri gott að vera í Heilsuborg  „Ég fann strax að það er gott að vera hér, þetta er svo heimilislegt og það er haldið svo vel utanum okkur með öllu því prógrammi sem er í boði bæði á grunn- og framhaldsnámskeiðinu. Við hittum hjúkrunarfræðing, lækni, sjúkraþjálfara og fleira fagfólk og það skiptir svo miklu máli að vel sé staðið að hlutunum. Ég myndi ekki segja að Heilsuborg væri eins og hinar líkamsræktarstöðvarnar. Hér eru samt allar græjur, öll tæki og tól en þetta er bara eins og að koma heim þetta er bara eins og heimili. Fólkið hér er ekki að pæla mikið í því að mæta í flottasta gallanum maður fer bara í það sem maður á og öllum líður vel.“


Sumir eru stórir og feitir aðrir mjóir en öllum líður vel
„Heilsuborg stendur fyrir svo góðum  hlutum. Það er bara heilsan alveg frá byrjunarpunkti og til enda, við erum sum hver stór og feit, aðrir eru mjóir en öllum líður vel hérna.  Andrúmsloftið í Heilsuborg er bara svo gott að ég tali ekki um leikfimina sem er svo skemmtileg. Þjálfararnir eru flottir og tónlistin góð. Ég hafði nefnilega áhyggjur að þetta myndi verða leiðigjarnt en tímarnir eru svo fjölbreyttir og skemmtilegir.“


Það má borða allt, þarf bara að huga að skammtastærðum
Helga er búin með grunnnámskeið í Heilsulausnum og er nýbyrjuð á framhaldsnámskeiðinu. „Ég ákvað að taka allan pakkann, tók bara hreyfinguna og mataræðið allt í einu. Þessi matarlisti frá Reykjalundi  hentar mér ógeðslega vel. Ég „masteraði“ bara listann strax í upphafi og fór út í búð og fór að lesa aftaná vörurnar í fyrsta skipti á ævinni en þessi stigagjöf í listanum hentar mér vel. Ég veit hvað ég má borða mikið af stigum fyrir hádegi og eftir hádegi og ég bara geri það. Þetta virkar vel fyrir mig, ég var voða ánægð þegar læknirinn hér sagði að það væri ekki verið að banna neitt, það þyrfti bara að huga að skammtastærðum. Ég gæti ekki breytt um lífstíl ef ég mætti ekki borða neitt."


18 kíló farin
„Ég hef náð góðum árangri á rúmum 2 mánuðum hef ég losnað við 18 kíló og ég er rosalega ánægð með það. Mér finnst það bara fáránleg tala að vera búin að missa þessi kíló. Ég er bara svo miklu hressari og með miklu meiri orku, þetta er eiginlega bara himin og haf, en þetta er bara rétt að byrja. Í upphafi setti ég mér eitt markmið, að koma mér í kjörþyngd á einu ári. Markmið tvö og þrjú verður síðan að halda þeim árangri sem ég næ. Ég var alltaf svolítið að skokka og er búin að setja mér háleit markmið fyrir maraþonið næsta sumar.“

 

Þakklát vinnuveitendum og samstarfsfólki

„Ég er með alveg frábært fólk í vinnunni hjá mér sem stendur við bakið á mér og styður mig í þessu ferli öllu. Ég gæti þetta ekki án þess að fá stuðning frá mínum vinnustað og ég er mjög þakklát fyrir það. Ég er svo ákveðin í að gera þetta ég er tilbúin að takast á við þetta. Það hjálpar ekki þegar aðrir eru að skipta sér af hlutunum þú verður að vilja gera þetta fyrir þig sjálfa. Ég ætla aldrei að megra mig oftar þetta snýst ekki um það að megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“


Lokaorð Helgu
„Hreyfðu þig  fyrir þig, ekki fyrir nokkurn annan.  Þetta er þín heilsa og þú þarf að taka ábyrgð á henni."

LineBreak