---------------------------------------------------------- Hönnun og forritun: ----------------------------------------------------------- Gagarín ehf. Klapparstíg 16 101 Reykjavík Sími: 510 9300 www.gagarin.is ---------------------------------------------------------
 
Heilsurækt

Sigríður Ólafsdóttir

LineBreak
buy ortho tri cyclen,buy ventolin,buy albuterol,buy xalatan,buy elocon,buy tretinoin,buy combivent,buy clindamycin,albuterol inhaler

Sigríður Ólafsdóttir
Heilsulausnir
13. mars 2014


„Ég byrjaði í Heilsulausnum í október 2012 og það var löngu orðið tímabært! Ég hætti að reykja og ætlaði alls ekki að bæta enn meira á mig við það. En það fór ekki alveg eins og ég ætlaði og eftir  gallblöðru-veikindi þá fór ég að þyngjast. Svo áttaði ég mig á því að mér fannst fíflunum vera farið að fjölga í kringum mig sem gat bara þýtt að ég þyrfti að líta aðeins í eigin barm og taka á málunum.“


Gæðin skipta máli
„Áður en ég byrjaði í Heilsulausnum þá borðaði ég aldrei morgunmat en þar sem ég fer mjög snemma á fætur þá var hungrið farið að segja verulega til sín í hádeginu og þá var tekið vel á diskinn. Maríanna hjúkrunarfræðingur Heilsuborgar kom með frábæra samlíkingu á því hvað þetta væri rangt. Hún líkti líkamanum við arinn og ef maður passaði ekki upp á að henda reglulega sprekum á eldinn þá væri enginn logi/brennsla. Mín skoðun var sú að ég væri ekki að borða neitt mikið, en nú hef ég lært að það eru gæðin og regla sem skipta máli og ég var að borða vitlaust og of sjaldan. Ég borða nú meira en áður, miklu hollari og betri mat. Ég var bara alltof mikið í „rusli“ þ.e. borðaði ruslfæði.“


„Breytingin í mataræðinu fólst aðallega í því að fara að borða morgunmat og forðast mikið unninn mat eins og pizzur, pylsur, hamborgara og slíkt. Ég veit að mér líður ekki vel af svona mat svo ég fæ mér miklu frekar flotta nautasteik og nýt þess miklu betur. Þó að mér finnist pizzur góðar þá eru þær ekki það góðar að ég leggi heilsuna að veði, nema örsjaldan.“
„Að sama skapi þurfti ég að hugsa mig hvað varðar ís. Mér finnst hann góður og hef tileinkað mér að ekkert sé bannað. Hins vegar þarf að setja einhverja reglu og halda sig viða hana. Ég var næstum komin á það að leyfa mér ís 1x í viku en þegar ég fattaði að það væru 52 ísar á ári þá fannst mér það ekki alveg í lagi. Mín regla er því að ís er í lagi að hámarki 1x í mánuði og mér finnst 12 ísar á ári alveg ásættanlegt. Þannig verður ísinn ákveðin verðlaun fyrir mig.“


„Ég þurfti að læra það að undirbúa mig t.d. fyrir veislur því að ég gat alveg dottið í 2-3 diska af gómsætum veitingum ef ég var ekki búin fyrirfram að ákveða hvernig ég ætlaði að tækla þetta. En í dag þarf ég að hugleiða þetta og vera undirbúin. Gott er að vera búin að ákveða fyrirfram að það sé bara einn diskur af góðgætinu, svo vanda þarf valið og njóta, koma ekki svangur því það er ávísun á of mikið magn af góðgætinu.“


Forritið My Fitness Pal bjargaði mér alveg
„Það er forrit sem reiknar út orkuna í matnum en ég hef aldrei alveg skilið þessar kaloríur. Að eitt Nizza sé t.d. um 300 kaloríur hefði ég ekki trúað. Ég fattaði ekki áður að eitt súkkulaðistykki skiptir máli. Ég þarf svolítið að hugsa mig um hvort ég tími að fá mér slíkt, því eitt súkkulaði er á við hálfa máltíð og þá þarf ég að vega og meta hvort ég vilji heldur. Maður þarf svolítið að „víla og díla“ við sjálfan sig og ég er að læra það. Ég get semsagt alveg fengið mér súkkulaði en þarf þá að sleppa einhverju öðru í staðin. Þetta er allt saman val!“


28-29 kílóum léttari

„Ég greindist með kæfisvefn og var með allt of háan blóðþrýsting en núna var ég að koma úr heilsufarsrannsókn og blóðþrýstingurinn er alveg eins og hann á að vera og það án lyfja. Svo held ég bara að ég sé að fara að kveðja hann Loft, þ.e. tækið sem hefur fylgt mér vegna kæfisvefnsins. Er að byrja að prófa að sofa án „hans“ og það gengur mjög vel. Lungnagetan er líka meiri en áður og svo munar líka um að losna við 28-29 kíló! Ekki nóg með það heldur heyrir brjóstsviði sögunni til. Svo er auðvitað búið að skipta út fataskápnum sem var bara skemmtilegt.“

„Mér finnst mikilvægt að vera jákvæð og þá sérstaklega þegar maður er að taka á mataræði, andlegri líðan og hreyfingu. Sjá það jákvæða í því daglega s.s. þau lífsgæði sem við höfum. Það að við eigum t.d. flottar heitar sundlaugar með nuddpottum sem við getum nýtt okkur og oft líður mér eins og drottningu að geta nýtt mér þessa aðstöðu án verulegs kostnaðar, flottari aðstaða en margir auðjöfrar hafa.  Ég kann alveg að njóta þess og finnst mikilvægt að maður sjái hvað maður hefur það  gott.“

„Svo er auðvitað mikilvægt að hafa góðan þjálfara og hún Sigurlín þjálfari var alveg frábær í því að sýna okkur réttu tökin og gaf manni ekkert eftir í æfingunum en um leið sýndi hún okkur áhuga og hvatti okkur áfram til að ná árangri.“

Á leið í göngur erlendis
„Núna syndi ég á hverjum degi, fer í stafgöngu 2x í viku og svo mæti ég í Heilsuborgina til að gera mínar æfingar 3x í viku. Ég lít á það sem svolítið heilagan tíma og ef ég kemst ekki á mínum tíma þá reyni ég að bæta mér það upp með því að mæta á öðrum tíma. Núna er ég farin að ganga í gönguhópum og er að stefna á að ganga allt Reykjanesið og það er gott að finna að maður getur þetta án vandkvæða. Svo er ég á leiðinni í tvær göngur erlendis, aðra á Tenerife og hina í Toskana og hlakka til að takast á við það.“


Lokaorð
„Ég er eiginlega alveg hissa hvað ég nenni þessu og hvað ég hef gaman af þessu. Auðvitað fæ ég margt í staðin eins og betri svefn, betri andlega líðan, auk þess að vera bara skemmtilegri og jákvæðari. Ég vill þakka starfsmönnum Heilsuborgar fyrir frábærar lausnir fyrir venjulegt fólk með venjuleg vandamál. Fyrirlestrarnir, ráðleggingarnar, þjálfunin og starfsfólk til fyrirmyndar. Ég hef líka nýtt mér frjálsa tíma sem eru í boði eins og stafgönguna með Margréti á þriðjudögum og fimmtudögum, TRT boltana á miðvikudögum, jóga og fl.  Frábær staður með fullt af skemmtilegum tímum þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“

LineBreak