Páll Hannesson
Páll Hannesson
Heilsulausnir
16. ágúst 2013
Kominn tími á breytingar
„Nú er að verða komið ár síðan ég byrjaði í Heilsulausnum. Staðurinn höfðaði til mín því ég vissi að hér inni fagfólk og mér fannst dagskrá námskeiðsins spennandi. Ég er tónlistarmaður og vinn því oft einhæfa vinnu, þarf að vera í einhæfum líkamsstöðum og gera sömu hreyfingar lengi. Ég var undirlagður af verkjum og þurfti oft að leggja mig á daginn. Mér fannst kominn tími til að gera breytingar og skráði mig því á námskeiðið.“
Almenn líðan miklu betri
„Núna ári síðar er almenn líðan miklu betri, ég er allur styrkari og þolið hefur aukist mikið. Ég er miklu sjaldnar þreyttur og svo eru verkirnir að mestu leiti horfnir. Svefninn er líka betri svo hreyfingunni fylgja margir plúsar. Ég hef líka tekið til í mataræðinu og hætti alveg að kaupa inn gos og sælgæti og sanka þess alls ekki. Svo borða ég minna af brauði en ég gerði áður og finn að það gerir mér gott.“
Nokkuð stoltur að hafa klárað þetta námskeið
„Mér finnst gott að koma í Heilsuborg en ég hef prófað aðra staði sem henta mér síður. Hér er mjög gott starfsfólk og allir eru mjög skilningsríkir og hjálplegir. Hér æfir venjulegt fólk, sem á það sameiginlegt að vilja bæta sína heilsu, hver og einn á sinn hátt. Ég hef verið heppinn með þjálfara sem hafa reynst mér vel og hvetja hópinn áfram. Ég var nú alveg sérfræðingur í að byrja og hætta í líkamsrækt svo ég er bara nokkuð stoltur af mér að hafa klárað þetta námskeið. Næstu skref eru auðvitað að halda þessu áfram, það er ekkert annað í boði!“
