Guðrún Unnur Guðnadóttir
Heilsulausnir
Ég hef verið styrktaraðili hjá mörgum líkamsræktarstöðvum en þetta er í fyrsta skipti sem ég næ markmiði mínu að mæta reglulega og halda áfram. Helsta ástæðan held ég að hafi verið félagsskapurinn en ég var í mjög skemmtilegum hópi og það var mikil samstaða í hópunum."
"Ég var með mjög lítið sjálfsálit áður en ég byrjaði á námskeiðinu og átti eiginlega erfitt með að vera í kringum fólk. Mig langaði alltaf í skóla en ég þorði ekki að taka það skref. Núna er ég komin í skóla og mér gengur mjög vel og langar í framhaldinu í félagsfræði. Ég hætti að reykja fyrir einum og hálfum mánuði og er ákveðin í að byrja ekki aftur. Ég missti ca. 8 kg. á námskeiðinu en það var ekki aðal atriðið heldur bætt sjálfsmynd og aukið þrek. Vinkona mín sem byrjaði með mér hefur lést um ein 18 kíló svo við erum báðar á réttri leið."
"Helsta breytingin sem ég fann við það að æfa reglulega var aukið þrek. Smátt og smátt fór ég að hafa löngunin í að gera ýmislegt sem ég hafði ekki orku í að gera áður. Núna fer ég í göngutúra og út að skokka með dóttur minni en það hefði ég ekki getað gert áður. Ég finn þörfina fyrir hreyfinguna og það er góð tilfinning. Ég er búin að smita karlinn minn en hann er núna í leikfimi 3x í viku. Hollara mataræði hefur líka haft áhrif á fjölskyldulífið og dóttur minni gengur miklu betur í skólanum með betri næringu. Mín kenning er að kolvetni kalli á kolvetni svo ég þarf að passa mig á þeim!"
"Ég er orðin háð hreyfingunni og ætla að halda áfram að hreyfa mig!"
