Sólveig Sigurðardóttir
Sólveig Sigurðardóttir
Heilsulausnir
Fréttablaðið 29. desember 2012
Englar í Heilsuborg
Sólveig Sigurðardóttir skráði sig á námskeið í Heilsuborg í mars síðastliðnum. Síðan hefur hún misst 32 kíló og náð undraverðum tökum á MS-sjúkdómnum.
"Mér fannst allt gott, hafði enga stjórn á skammtastærðum og borðaði yfirleitt þar til ég stóð á gati," útskýrir Sólveig um holdafar sitt, sem var komið að hættumörkum þegar hún ákvað að snúa við blaðinu og endurheimta sjálfa sig úr viðjum offitu. "Þá fór ég á námskeiðið Heilsulausnir fyrir fólk með offitutengda sjúkdóma. Ég var sem betur fer ekki svo illa stödd en farin að óttast um heilsu mína og langaði ekki að lifa svo illa á mig komin lengur," segir Sólveig sem vildi læra að borða rétt og lifa í sátt við sjálfa sig.
"Þrek mitt var ekkert orðið og mig langaði ekki að taka þátt í neinu svona útlítandi. Þegar ég fór að ná árangri, léttast og líða betur hugsaði ég tíðum hví í ósköpunum ég hefði ekki tekið í taumana fyrr. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að ég væri að missa af lífinu og get ég ekki ímyndað mér hvernig lífið væri nú hefði ég ekki farið í Heilsuborg."
Sólveig segir helstu kosti Heilsuborgar vera framúrskarandi og velviljað fagfólk og að þar æfi fólk sem sé í sömu sporum. "Ég byrjaði á skyldumætingu þrisvar í viku en eftir mánuð vildi ég koma oftar og æfi nú sex daga vikunnar. Ég fór meira að segja á aðfangadag og hefði skellt upp úr fyrir ári hefði mér verið sagt að ég ætti eftir að vera í leikfimi á sjálfum jólunum."
Fyrir áratug greindist Sólveig með MS-sjúkdóminn og hefur stundum þurft að vera í hjólastól. "Í dag lifi ég í sátt og samlyndi við sjúkdóminn og lít á hann sem vin sem ég get stjórnað í stað óvinar sem réðst reglulega á mig. Vegna betra líkamsforms og mataræðis er MS-þreytan nánast farin og mér hefur aldrei liðið betur," segir Sólveig, sem einnig heldur niðri rósroða eftir að hún breytti um lífsstíl.
"Að breyta um mataræði er mikil vinna í fyrstu og ég hef reynt að boð og bönn virka ekki. Nú elda ég allan mat frá grunni úr fersku hráefni og hef loks lært að nýta garðinn undir grænmetis- og kryddjurtarækt. Ég hætti að vera svöng þegar ég lærði að borða reglulega og langar sjaldnast í nammi því mér líður svo vel að borða rétt," segir Sólveig.
"Sjálfstraust mitt hefur aukist og ég finn mun á framkomu annarra eftir að ég léttist. Mig langar að missa átján kíló til viðbótar og veit að mér mun takast það í Heilsuborg. Þar eru englar að verki."
Sjá viðtalið á bls. 4 (aukablaðið er aftast) í Heilsublaði Fréttablaðsins
